|

ELKO ehf. hóf starfsemi 28. febrúar 1998 og hefur frá upphafi verið leiðandi fyrirtæki í raftækjamarkaði á Íslandi. Og hefur ávallt haft það markmið að bjóða þekkt vörumerki á lágu verði.
ELKO rekur 2 stórmarkaði í Lindum og Skeifunni 7. Auk þess var opnuð ný verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1. apríl 2007. Verslunin er á brottfararsvæði og er 250 m² og einnig er um 80 m² “búð í búð” verslun í komuverslun Fríhafnarinnar. ELKO er eina verslunin sem selur rafmagnstæki í Flugstöðinni.
Frá 25. maí 2007 hefur ELKO rekið vefverslunina www.elko.is. Vefverslunin er sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi með yfir 6000 vörur í boði.
Ný verslun ELKO í Lindum er stærsta ELKO verslunin og jafnframt stærsta raftækjaverslun á Íslandi, rúmlega 3.000 m². Hún hefur fengið frábærar móttökur, enda stór og glæsileg verslun sem býður upp á öll bestu merkin í heimilistækjum í heiminum.
www.elko.is www.elkofrihofn.is
Framkvæmdastjóri
Gestur Hjaltason
|