Um Norvík

Starfsemi Norvíkur hf. hófst árið 1962 með stofnum BYKO ehf.

Höfuðstöðvar samsteypunnar eru í Reykjavík og má skipta starfseminni upp í tvo megin þætti:

  • Smásöluverslun á Íslandi.
  • Timburiðnað og flutningastarfsemi og -þjónustu um þvera Evrópu.

Velta ársins 2010 skipaði samsteypuna í 15 sæti yfir veltumestu fyrirtækin á íslenskum markaði.

Árið 2011 nam velta félagsins um 500 milljónum evra og fjöldi starfsmanna var yfir 3.000 talsins.

 

Smásöluverslun á Íslandi

BYKO ehf., byggingavörustarfsemi:

  • Stærsta byggingavöruverslun Íslands.
  • Starfrækir byggingavöruverslanir, timbursölur og leigumarkaði á fjölmörgum stöðum á landinu.

ELKO ehf., stórmarkaður með raftæki:

  • Stærsta raftækjaverslun landsins og leiðandi á sínu sviði.
  • Verslanir ELKO eru þrjár á höfðuborgarsvæðinu og ein í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

INTERSPORT ehf.,  sportvöruverslun:

  • Verslanir á fjórum stöðum á landinu.

KAUPÁS hf., matvöruverslanir:

  • 25 verslanir á höfðuborgarsvæðinu og víðsvegar um sunnanvert landið.
  • Þrjár keðjur: Krónan, Nóatún og Kjarval.

 

Timburiðnaður Norvíkur

Staðsetning rekstrarins er í Lettlandi, Eistlandi, Rússlandi, Bretlandi og Svíþjóð.

BYKO-LAT í Valmiera og CED í Cesis, Lettlandi. LAESTI í Parnu, Eistlandi:

  • Leiðandi framleiðendur af söguðu og hefluðu timbri, garðvörum, garðhúsgögnum og húseiningum.
  • BYKO-LAT rekur einnig tvær sögunarmyllur í Parnu, Eistlandi, undir vörumerkinu LAESTI.

VIKA WOOD í Talsi, Lettlandi:

  • Stærsta sögunarmilla í Lettlandi með árlega framleiðslu sem nemur 280.000 m3 af sagaðri furu og greni.

JARL TIMBER í Broakulla, Svíþjóð:

  • Framleiðir sagaða og heflaða furu og greni.

NORWOOD í Syktyvkar, Komi Republic, Rússlandi:

  • Timburframleiðsla, sögunarmylla, sölustarfsemi og flutningur.

CONTINENTAL WOOD í Bretlandi:

  • Innflytjendur af timbri og timburafurðum til Bretlands.
  • Systurfélagið „NORVIK SHIPPING“ á og rekur hafnar- og skipaþjónustu frá Baltic Wharf, Creeksea, ásamt skipa- og flutningaþjónustu til og frá Bretlandi.

 

Tengd félög:

Ísland

  • BAKKINN vöruhótel.
  • EXPO markaðsráðgjöf og auglýsingaskrifstofa.

Eistland 

  • EWP fasteignafélag í Eistlandi.

 


 

Stjórn Norvíkur

 

Forstjóri
Jón Helgi Guðmundsson
Framkvæmdastjóri
Brynja Halldórsdóttir

Stjórn

Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarf.
Guðmundur H. Jónsson
Iðunn Jónsdóttir
Steinunn Jónsdóttir
Þórður Magnússon