Fimmtudagur, 10. júní 2010

byko_208x83

Get Adobe Flash player






BYKO rekur stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.

Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.

Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína. Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

www.byko.is


Framkvæmdastjórn BYKO

Guðmundur Halldór Jónsson Forstjóri BYKO
Birgir Ö. Friðjónsson Framkvæmdastjóri stoðsviða
Brynja Halldórsdóttir Fjármálastjóri
Eggert Kristinsson Framkvæmdastjóri markaðssviðs
Sigurður Pálsson Framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs
Steingrímur B. Björnsson Framkvæmdastjóri fagsölusviðs