Sameining EGILS þjónustuverkstæðis og Fiskvéla & tækja ehf.
Þriðjudagur, 01. september 2009
egill_logofiskvelar_logo

Frá og með 1. september verður rekstur Fiskvéla & tækja ehf. yfirtekinn af AGLI þjónustuverkstæði. Markmið sameiningarinnar er
að búa til öflugt þjónustu- og framleiðslufyrirtæki sem veitt getur viðskiptavinum öfluga og góða þjónustu.


EGILL þjónustuverkstæði hefur á síðastliðnum mánuðum verið í mjög góðu samstarfi við Fiskvélar & Tæki ehf. og hafa
stjórnendur beggja fyrirtækjanna orðið varir við töluvert meiri eftirspurn eftir þjónustu við fiskvinnsluvélar ásamt því framleiðsla
á varahlutum fyrir viðskiptavini hefur jafnt og þétt verið að aukast á síðustu misserum.


EGILL þjónustuverkstæði hefur á síðustu árum verið rekið sem heilsteypt þjónustuverkstæði en þar starfa að jafnaði 20
starfsmenn og samanstendur sá hópur af rafvirkjum, vélvirkjum, rennismiðum, vélfræðingum og rafeindavirkjum. Sú framleiðsla
og þjónusta sem hefur verið til staðar hjá Fiskvélum & Tækjum ehf. síðustu árin verður áfram óskert og sú þekking og reynsla sem
er fyrir hendi hjá starfsmönnum Fiskvéla & Tækja ehf. mun áfram nýtast fyrir viðskiptavini. Um miðjan næsta mánuð sameinast
rekstur beggja fyrirtækja undir einu þaki í rúmlega 1600 M2 húsnæði að Miðhrauni 2 í Garðabæ. Jafnframt mun sameinað félag
bera nafnið EGILL.


Eftir sameiningu verður fjöldi starfsmanna um 30 og mun EGILL samanstanda af eftirfarandi deildum:

  • Rafmagnsverkstæði
  • Véla & mótorverkstæði
  • Renniverkstæði
  • Verkstæði fyrir stærri heimilistæki
  • Verkstæði fyrir almennar viðgerðir
  • Fiskvélar

Núverandi framkvæmdastjóri Fiskvéla & Tækja ehf., Jörgen Wolfram Gunnarsson mun sinna sölustörfum hjá AGLI meðfram öðrum
störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur.


Framkvæmdasstjóri EGILS verður Freyr Friðriksson og mun hann stýra daglegum rekstri fyrirtækisins. Í stjórn EGILS verða
Guðmundur H. Jónsson, Sigurður E. Ragnarsson og Bjarni Th. Bjarnason.

Virðingarfyllst,

Guðmundur H. Jónsson