|
Mánudagur, 16. júní 2008 |
Verslunum Nóatúns fækkar um þrjár á komandi vikum sem er liður í rekstrarhagræðingu og stefnumótun Nóatúns til framtíðar. Verslun Nóatúns í Hverafold var lokað 9. júní, verslun Nóatúns í Furugrund í Kópavogi lokar þann 1. júlí nk. og í Smáralind þann 15. júlí nk. Starfsfólki verslananna sem verður lokað hefur verið boðin störf innan annarra verslana Kaupáss eins og kostur er.
Eftir þessar breytingar verða verslanir Nóatúns átta talsins, í Austurveri, Grafarholti, Hafnarfirði, Hamraborg, Hringbraut, Nóatúni, Rofabæ og á Selfossi. Markmiðið er að styrkja þessar verslanir og færa þær nær framtíðarsýn Nóatúns auk þess að bæta þjónustu þeirra enn frekar. Nóatún er í forystu meðal gæða- og þjónustuverslana á Íslandi.
Nóatún nýtur yfirburðastöðu þegar kemur að gæðum og framsetningu á kjöti, fiski og öðrum sviðum ferskvöru. Eftir breytingarnar munu starfa um 500 samhentir starfsmenn á öllum aldri í verslunum Nóatúns.
|