
BYKO rekur stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína. Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.
www.byko.is
Framkvæmdastjórn BYKO
| Guðmundur Halldór Jónsson |
Forstjóri BYKO |
| Eggert Kristinsson |
Aðstoðarforstjóri |
| Pétur Andrésson |
Framkvæmdastjóri Vörustjórnunarsviðs |
| Birgir Örn Friðjónsson |
Framkvæmdastjóri Stoðsviða |
| Steingrímur B. Björnsson |
Framkvæmdastjóri Fagsölusviðs |
| Sigurður Pálsson |
Framkvæmdastjóri BAKKINN Vöruhótel |
|