Bakkinn_husbakkinn_208x83

Bakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu og tengdri þjónustu.

Bakkinn vöruhótel hóf formlega starfsemi vorið 2008, en grunnur þess var lagður við áralangan rekstur vöruhúss BYKO og ELKO.  Starfsmenn og stjórnendur Bakkans búa yfir áralangri reynslu í vöruhúsastarfsemi og hafa það markmið að hámarki í hvívetna skilvirkni og halda upp gæðum í sínum störfum sem skilar sér til viðskiptavina Bakkans.

Bakkinn hýsir byggingavörur, húsgögn, raftæki, matvörur  og fleira.

Í Bakkanum er rými fyrir rúmlega  - 21.000 vörubretti auk þess sem þar eru 27.000 hólf fyrir smávöru.

Bakkinn vöruhótel hefur frá opnun  – tileinkað sér nýjustu tæknilausnir í vöruhúsarekstri og má þar nefna  strikamerkjalausnir, skönnun strikamerkja, rafrænar tengingar –jafnt i innanhús sem og við upplýsingakerfi viðskiptavina.

Bakkinn státar af því að vera eina vöruhúsið á Íslandi sem kalla má pappírslaust hús, öll verkefni fara fram með rafrænum hætti sem ekki kalla  á útprentun eða notkun pappírs á annan hátt.

www.bakkinn.is


 

 

Framkvæmdastjóri
Sigurður Pálsson